Sefanía. Chapter 2
1 Beyg þig og læg þig, þú þjóð, sem eigi blygðast þín,
2 áður en þér verðið eins og fjúkandi sáðir, áður en hin brennandi reiði Drottins kemur yfir yður, áður en reiðidagur Drottins kemur yfir yður.
3 Leitið Drottins, allir þér hinir auðmjúku í landinu, þér sem breytið eftir hans boðorðum. Ástundið réttlæti, ástundið auðmýkt, vera má að þér verðið faldir á reiðidegi Drottins.
4 Gasa mun verða yfirgefin og Askalon verða að auðn. Asdódbúar munu burt reknir verða um hábjartan dag og Ekron í eyði lögð.
5 Vei yður, þér sem búið meðfram sjávarsíðunni, þú Kreta þjóð! Orð Drottins beinist gegn yður, Kanaan, land Filista! Já, ég mun eyða þig, svo að þar skal enginn búa.
6 Og sjávarsíðan skal verða að beitilandi fyrir hjarðmenn og að fjárbyrgjum fyrir sauðfé.
7 Þá mun sjávarsíðan falla til þeirra, sem eftir verða af Júda húsi. Þar skulu þeir vera á beit, í húsum Askalon skulu þeir leggjast fyrir að kveldi. Því að Drottinn, Guð þeirra, mun vitja þeirra og snúa við högum þeirra.
8 Ég hefi heyrt svívirðingar Móabs og smánaryrði Ammóníta, er þeir svívirtu með þjóð mína og höfðu hroka í frammi við land þeirra.
9 Fyrir því skal, svo sannarlega sem ég lifi
10 Þetta skal þá henda fyrir drambsemi þeirra, að þeir hafa svívirt þjóð Drottins allsherjar og haft hroka í frammi við hana.
11 Ógurlegur mun Drottinn verða þeim, því að hann lætur alla guði jarðarinnar dragast upp, svo að öll eylönd heiðingjanna dýrki hann, hver maður á sínum stað.
12 Einnig þér, Blálendingar, munuð falla fyrir sverði mínu.
13 Og hann mun rétta út hönd sína gegn norðri og afmá Assýríu. Og hann mun leggja Níníve í eyði, gjöra hana þurra sem eyðimörk.
14 Mitt í henni skulu hjarðir liggja, alls konar dýr hópum saman. Pelíkanar og stjörnuhegrar munu eiga náttból á súlnahöfðum hennar. Heyr kliðinn í gluggatóttunum! Rofhrúgur á þröskuldunum, því að sedrusviðarþilin hafa verið rifin burt!
15 Er þetta glaummikla borgin, er sat andvaralaus og sagði í hjarta sínu: 'Ég og engin önnur'? Hversu er hún orðin að auðn, að bæli fyrir villidýr! Hver sá er þar fer um, blístrar og hristir hönd sína hæðnislega.